Gistivefurinn www.gisting.is hefur að geyma upplýsingar um fjölda gististaða um land allt. Á vefnum er einnig fjöldi götukorta yfir þéttbýli og bæjarfélög með ýmsum upplýsingum fyrir ferðafólk. 
Þú finnur gististaðina og staðsetningu þeirra á augabragði á eftirfarandi hátt. Smelltu hér að ofan á Íslandskortið eða landshlutana í valröndinni, þá birtist kort af viðkomandi landsfjórðungi. Bláir blikkandi punktar segja hvar gistingarnar eru og með því að smella á þá birtist mynd og upplýsingar um viðkomandi gistingu. Rauðu punktarnir sýna þéttbýli eða bæjarfélög og með því að smella á þá birtist nákvæmt kort sem sýnir gististaðina í því bæjarfélagi með blikkandi bláum punktum. 
Hægt er að finna ákveðinn gististað, með því að slá nafni hans inn í leitarglugga sem er staðsettur hægra megin upp í horninu hér á síðunni. Á sama hátt má finna tegund gistinga t.d. Farfuglaheimilin, Gistiheimilin o.s.frv. |